Chat with us, powered by LiveChat
Fara á efnissvæði

Spurt og svarað

Mælavæðing

Hvers vegna snjallmælavæða dreifiveituna?

Snjallmælar eru oft fyrsta skrefið í "snjallþróun" veitukerfa. Snjöll veitukerfi eru byggð ofan á snjallmæla en þá er sjálfvirkni í stjórnun kerfanna aukin. Með snjallmælum skila upplýsingar um raforkunotkun viðskiptavina sér inn í orkureikningakerfið. Því er ekki þörf á heimsóknum álesara til að lesa af mælinum og áætlun orkunotkunar heyrir sögunni til. Viðskiptavinur greiðir þá ætíð fyrir raunnotkun samkvæmt mæli.

Snjallmælavæðing á dreifiveitusvæðum okkar

Á vormánuðum 2015 hófst snjallvæðing allra sölumæla á veitusvæðum okkar. Snjallmælavæðingin samanstendur af uppsetningu nýrra vatns- og raforkumæla hjá nær öllum okkar viðskiptavinum og uppsetningu söfnunarkerfis sem er í sambandi við snjallmæli viðskiptavina.

Áætlað er að snjallmælavæðingin taki allt að átta ár í uppsetningu og ljúki því í lok árs 2022. Á veitusvæðum okkar eru þann 1.6.2021 samtals 38.825 raforkumælar og 11.066 vatnsmælar tengdir hjá viðskiptavinum okkar.
Þegar búið er að setja upp snjallan mæli hjá viðskiptavini og hann er kominn í samband við upplýsingakerfin okkar byggir reikningagerð ekki lengur á áætlaðri notkun viðskiptavinar. Viðskiptavinir greiða þá fyrir raun notkun vörunnar hverju sinni.

Við viljum þó benda á að þó svo að viðskiptavinir séu komnir með snjallmæli er ekki sjálfgefið að greiða strax eingöngu fyrir raunnotkun því mögulegt er að uppsetning söfnunarkerfis sé ekki tilbúin þegar mælirinn hefur verið settur upp.

Ávinningur viðskiptavina

Helsti ávinningur viðskiptavina okkar í kjölfar snjallmæla-væðingarinnar er að viðskiptavinir fá reikning fyrir raun notkun sína eftir lok hvers mánaðar í stað áætlunarreikninga. Þar með gefst viðskiptavinum HS Veitna tækifæri til að bregðast fyrr við ef um óeðlilega notkun verður að ræða.

Eldri aðferðafræðin byggði á því að lesið var á mælirinn einu sinni á ári og því fylgdi villuhætta við innslátt álesturs ásamt því að ef einhver heimilistæki jafnvel höfðu bilað (farin að eyða óeðlilega mikilli orku) eða nýjum orkufrekum heimilistækjum hafði verið bætt á heimilið. Í mörgum tilfellum kom þetta þá ekki í ljós fyrr en mörgum mánuðum síðar með óþægilega háum reikningi til viðskiptavinar sem var engum til ánægju. Í núverandi uppsetningu söfnum við sólarhrings gildum af mælunum í okkar upplýsingakerfi og notast er við nýjasta gildi liðins mánaðar við reikningagerðina.

Uppsetning snjallmælis vatns og raforku hjá viðskiptavinum

Uppsetning snjallmæla hjá viðskiptavinum er í höndum starfsmanna HS Veitna nema í Vestmannaeyjum þar sem verktakar sjá um uppsetninguna. Starfsmenn okkar eru í fatnaði merktum fyrirtækinu. Haft verður nánara samband áður en kemur að mælaskiptunum sjálfum.

Uppsetning rafmagnsmælis tekur að öllu jöfnu 10-15 mínútur og verður viðskiptavinur straumlaus á meðan á framkvæmd stendur.
Uppsetning vatnsmælis í stað eldri gerðar af mæli tekur um 20-30 mínútur og verður viðskiptavinur vatnslaus (heitt eða kalt) á meðan á framkvæmd stendur.
Vatnsleysi við útskipti á hitaveituhemli fyrir mæli tekur að meðaltali um 30-60 mínútur, vatnslaust verður á meðan framkvæmd stendur yfir.

Gæðaeftirlit

Ásamt því að safna upplýsingum um notkun safna mælarnir einnig ýmsum upplýsingum er snúa að gæðum afhendingar hjá HS Veitum til viðskiptavinar. Má þar nefna...

  • Spennu á fösum í rafmagninu við mæli 
  • Hitastig á hitaveituvatni á afhendingarstað

Mælarnir láta einnig vita ef átt er við þá ásamt því að rennslismælarnir láta vita ef óeðlilegt rennsli verður um mælirinn eða rafhlaða mælis er að tæmast. Þessar upplýsingar nýtast okkur til að bæta þjónustu við viðskiptavini og stuðla að betri gæðum þeirra afurða sem við afhendum

Öryggi samskipta

Allir snjallmælar byggja á þeirri tækni að gögnin frá þeim fara dulkóðuð frá mæli að söfnunarhugbúnaði og þarf hugbúnaðurinn að hafa dulkóðunar lykla („encryption keys“ ) til að geta lesið gagnapakkann frá mælinum og vistað niður upplýsingarnar sem honum fylgja.
 
Mælaframleiðendurnir útbúa þessa lykla við framleiðslu á mælinum og senda lykil fyrir hvern mæli sem við kaupum. Þannig geta kerfi okkar ein haft samskipti við viðkomandi mæli en ekki aðrir aðilar eða aðrar veitur í nágrenninu með sambærilegan búnað.

Inn á Mínum Síðum er hægt að fylgjast með notkun niður á dag og klukkustund (á við raforkumæla). Því er hægt að fylgjast með breytingum á notkun heimilisins ef til dæmis nýtt orkufrekt heimilistæki er keypt ( þurrkari, frystiskápur, rafmagnsbíll eða annað slíkt ).
 

Hægt er að sjá frekari upplýsingar um samskipti safnstöðvanna við mælana hér.

Samantekt á ávinningi af snjallmælum

  • Ekki þörf á heimsóknum álesara til að lesa stöðu mælis
  • Upplýsingar um notkun skrást rafrænt, oftast með klukkutíma upplausn
  • Raunreikningar í stað áætlunarreikninga
  • Upplýstir viðskiptavinir, minna álag á þjónustuver
  • Einfaldara að framkvæma flutninga
  • Fljótlegra og einfaldara innheimtuferli vegna fjarlokana á veitum
  • Upplýsingar um straumrof fást strax
  • Vöktun á afhendingargæðum
  • Ástands og bilanagreining
  • Möguleg verðstýring, til að hafa áhrif á notkunarhegðun
  • Möguleg þátttaka í reglun raforkukerfisins með rafbílum, rafhlöðum eða orkuframleiðslu