Chat with us, powered by LiveChat
Fara á efnissvæði

Gæðastefna

Varmadæla
© HS Veitur

HS Veitur færa heimilum, fyrirtækjum og sveitarfélögum lífsgæði með því að veita aðgengi að tærum og endurnýjanlegum auðlindum á sjálfbæran og hagkvæman hátt.

Fyrirtækið skapar samfélaginu tækifæri til vaxtar og uppbyggingar með því að tryggja hnökralaust aðgengi að raforku, heitu vatni og hreinu neysluvatni. Með því eru búsetuskilyrði bætt og samkeppnishæfni þjónustusvæðisins efld.

HS Veitur veita þjónustu sem einkennist af áreiðanleika, hagkvæmni og jákvæðu viðmóti. Fyrirtækið starfar af heilindum og er framsækið í nálgun sinni. Mannauður HS Veitna býr yfir víðtækri þekkingu og reynslu sem nýtist við þróun og framfarir til hagsbóta fyrir viðskiptavini.

Lögð er áhersla á stöðugar umbætur og að starfsemin sé í samræmi við lög, reglugerðir og aðrar viðeigandi kröfur.

HS Veitur eru eftirsóttur vinnustaður þar sem öryggi og velferð starfsfólks, verktaka og annarra sem starfa fyrir fyrirtækið eru í forgrunni.

Fyrirtækið viðhefur heilbrigða og ábyrga viðskiptahætti í sátt við umhverfi og samfélag.

 

Samþykkt af framkvæmdastjórn 23.06.2025