Chat with us, powered by LiveChat
Fara á efnissvæði

Staða veitukerfa á Suðurnesjum 23. nóvember

Eldgos hófst í Sundhnúksgígum seint að kvöldi 20. nóvember sl. Neyðarstjórnir HS Veitna og HS Orku eru að störfum og fylgjast náið með þróun mála.

Eldgos Reykjanesbaer Nov2024 Gardarolafs
Horft yfir Reykjanesbæ að kvöldi 21. nóvember 2024

Staðan síðdegis þann 23. nóvember er þannig að eldgosið er stöðugt og hraun rennur meðfram varnargörðum sem liggja umhverfis Svartsengi og Bláa Lónið.  Eins og við er að búast við slíkar aðstæður hækkar hraungarðurinn og hefur hann nú náð hæð varnargarðanna á köflum. Almannavarnir hafa því virkjað næsta skref í vörnum sem felst í hækkun varnargarða og undirbúningi hraunkælingar við þá og er kælingin nú til reiðu.

Auk þess er unnið að því að byrgja þann hluta Njarðvíkuræðar sem liggur innan varnargarða með sama hætti og lögnin er varin fyrir utan varnargarða.  Þær varnir hafa haldið eftir að hraun flæddi yfir lagnaleiðina sl fimmtudag utan garða.  Vel er fylgst með ástandi lagnarinnar og allar mælingar benda til þess að hraunflæði hafi enn sem komið er ekki haft áhrif og afhendingargetan því óskert. 

Eldgosið hefur því ekki haft teljandi áhrif á afhendingu á heitu vatni, köldu vatni eða rafmagni til sveitarfélaganna á Suðurnesjum og standa vonir til að svo verði áfram.

Í náttúruhamförum sem ógna innviðum er þó nauðsynlegt að vera við öllu búin. HS Veitur og HS Orka benda því viðskiptavinum á Suðurnesjum á að vera undir það búin að eldgosið gæti haft áhrif á afhendingu á heitu vatni.  Minnum við á ábendingar HS Veitna í tengslum við mögulegt þjónusturof vegna náttúruhamfara sem eru aðgengilegar hér
 
Heitavatnsnotkun á Suðurnesjum hefur aldrei verið jafn mikil á þessum árstíma og hún er nú, meðal annars vegna þess hvað byggðin hefur stækkað. Við þær aðstæður sem nú eru í Svartsengi er heitavatnsframleiðslan undir miklu álagi. Eru notendur hvattir til að fara sparlega með heita vatnið og gæta þess að halda varma inn í húsum. Það mun auk þess koma sér vel ef aðstæður breytast og heitt vatn hættir að berast frá Svartsengi. 

Tilkynningin verður uppfærð ef breytingar verða á stöðu veitukerfa vegna eldgossins.
.