Chat with us, powered by LiveChat
Fara á efnissvæði

Staða veitukerfa á Suðurnesjum 22. nóvember

Eldgos hófst í Sundhnúkagígum seint að kvöldi 20. nóvember sl. Neyðarstjórn HS Veitna hefur verið að störfum og fylgist náið með þróun mála.

Eldgos Reykjanesbaer Nov2024 Gardarolafs
Horft yfir Reykjanesbæ að kvöldi 21. nóvember 2024

Staðan

Staðan um hádegisbil þann 22. nóvember er þannig að eldgosið hefur enn sem komið er ekki haft áhrif á afhendingu á heitu vatni, köldu vatni eða rafmagni þrátt fyrir að hraunflæði hafi ógnað innviðum sem færa viðskiptavinum fyrirtækisins á Suðurnesjum heitt vatn og rafmagn. 

Njarðvíkuræð undir nýju hrauni

Áfram er vel fylgst með stöðu Njarðvíkuræðar og allar mælingar benda til þess að hraunflæði hafi enn sem komið er ekki haft áhrif og afhendingargetan því óskert. Standa vonir til að svo verði áfram, þó líkt og áður hefur komið fram sé ekki á vísan að róa í þeim efnum. Minnum við á ábendingar okkar ef íbúar vilja undirbúa sig undir mögulegt þjónusturof vegna þessa. 

Áframhaldandi upplýsingagjöf

Neyðarstjórn HS Veitna heldur áfram að fylgjast náið með stöðu mála og munum við halda okkar viðskiptavinum upplýstum. Verður þessi frétt uppfærð ef breytingar verða á stöðu veitukerfa vegna eldgossins.