Chat with us, powered by LiveChat
Fara á efnissvæði

Netmáli 1.0 til kynningar

Til umsagnar: Netmálar vegna nýrra tenginga við dreifiveitu og stórar fjárfestingar vegna útmötunar

Hs Veitur OZZO 2024 0125

Dreifiveitur rafmagns kynna hér til umsagnar Netmála 1.0 - Skilmálar um viðbótarkostnað vegna nýrra tenginga við dreifiveitu og stórar fjárfestingar vegna útmötunar. 
Í netmálanum felast skilmálar sem gilda fyrir allar dreifiveitur rafmagns um hvernig staðið skuli að útreikningi á viðbótarkostnaði vegna nýrrar tengingar eða styrkingar á kerfi dreifiveitu í tengslum við afhendingu til notenda. 
Netmálinn er unninn á grundvelli raforkulaga og reglugerð nr. 1040/2005 um framkvæmd raforkulaga, með síðari breytingum, sérstaklega 2. gr. reglugerðar 302/2022 - Kerfisframlag vegna nýrra tenginga við dreifiveitu.

Umsagnarferlið stendur til 14. mars 2025. Vinsamlegast skilið umsögnum til HS Veitna á netfangið hsveitur@hsveitur.is eða til Samorku, á netfangið katrinh@samorka.is 

Hér fyrir neðan er hægt að lesa og niðurhala netmála og viðaukum.