Chat with us, powered by LiveChat
Fara á efnissvæði

Inga Lára nýr framkvæmdastjóri þjónustu & snjallra lausna

Inga Lára Jónsdóttir hefur tekið við sem framkvæmdastjóri nýs sviðs, þjónustu og snjallra lausna, hjá HS Veitum. Sviðið var stofnað í kjölfar skipulagsbreytinga sem tóku gildi um síðustu áramót.

Inga Lára Jónsdóttir

HS Veitur eru framsækið þekkingar- og þjónustufyrirtæki í veitustarfsemi sem telst til mikilvægra innviða. Fyrirtækið þjónustar mörg af stærstu fyrirtækjum landsins og eru íbúar á veitusvæði HS Veitna rúmlega 92 þúsund talsins.

Inga Lára er viðskiptafræðingur með MS-gráðu í forystu og stjórnun. Hún hefur víðtæka og farsæla reynslu úr atvinnulífinu og starfaði áður hjá Securitas sem útibússtjóri á Reykjanesi frá árinu 2022, þar sem hún bar ábyrgð á rekstri útibúsins í heild. Þar áður starfaði hún hjá Lagardère sem markaðsstjóri.

Inga Lára tekur sæti í framkvæmdastjórn HS Veitna samhliða nýju starfi og er það í fyrsta sinn í sögu fyrirtækisins sem kynjahlutfall framkvæmdastjórnar er jafnt.

Það fylgja bæði tækifæri og áskoranir breytingum sem þessum, en ég er algjörlega sannfærð um að í sameiningu eigum við eftir að efla sviðið og veita viðskiptavinum okkar enn betri þjónustu. Ég er mikil keppnismanneskja og hef brennandi áhuga á tækniframförum og stjórnun – sérstaklega þjónustustjórnun. Því er ég full tilhlökkunar að leggja mitt lóð á vogarskálarnar og leiða frábært teymi þjónustu og snjallra lausna hjá HS Veitum áfram veginn á þessum spennandi tímum,“ segir Inga Lára Jónsdóttir.

Við erum virkilega ánægð með að fá Ingu Láru til liðs við okkur. HS Veitur reka samfélagslega mikilvæga innviði sem færa viðskiptavinum lífsgæði. Í kjölfar stefnumótunarvinnu á síðasta ári var tekin ákvörðun um að gera þjónustu við viðskiptavini hærra undir höfði með því að stofna sérstakt svið utan um þessa einingu. Inga Lára hefur fengið það verðuga verkefni að móta þetta nýja svið og leiða teymi þjónustu og snjallra lausna,“ segir Páll Erland, forstjóri HS Veitna.