Páll Erland, forstjóri HS Veitna, tók þátt í pallborði í upphafsmálstofu þingsins undir yfirskriftinni „Samtal við samfélag“. Hann flutti einnig erindi um veiturekstur á tímum náttúruhamfara, krísustjórnun og lærdóm af reynslu í málstofu um veitur undir álagi, viðnámsþrótt gagnvart náttúruvá og hnattrænum áskorunum.

Jónas Dagur Jónasson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar, flutti tvö erindi. Fyrst í málstofu um gjaldskrár dreifiveitna undir yfirskriftinni „Lykill að skynsamri orkunýtingu“, þar sem fjallað var um gjaldskrár sem stjórntæki. Í öðru erindi, í málstofu um "framtíð rafveitna – græn uppbygging og rekstur rafveitna", fjallaði hann um undirbúning dreifiveitna fyrir orkuskipti.

Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og innri þjónustu, fjallaði um uppfært skipulag í takt við þarfir nútímans með það að leiðarljósi að gera gott betra í málstofu um mannauðsmál og skipulagsbreytingar.
Egill Sigmundsson, framkvæmdastjóri veitukerfa, sagði frá því í málstofu um upplýsingatækni og þjónustumál að HS Veitur eru fyrsta veitufyrirtækið á Íslandi til að klára snjallmælavæðingu. Hann ræddi vegferðina og hvernig snjallmælagögn skapa virði til bæði skemmri og lengri tíma litið.

Guðmundur Helgi Albertsson, svæðisstjóri á Suðurnesjum, fjallaði um hvernig HS Veitur hafa stuðlað að lágmörkun á hættu á algjöru þjónusturofi á Suðurnesjum í málstofu um veitur undir álagi: viðnámsþrótt gagnvart náttúruvá og hnattrænum áskorunum.
Að lokum tók Sigrún Inga Ævarsdóttir, samskipta- og markaðsstjóri, þátt í pallborði í samskiptavinnustofu undir yfirskriftinni „Upplýsingaóreiða eða upplýst samtal?“.
