Fengum viðurkenningu sem Framúrskarndi fyrirtæki 2021 afhenta í gær fimmtudaginn 21. október.
Það er Creditinfo sem veitir viðkenninguna en HS Veitur eru eitt af 2% íslenskra fyrirtækja sem hljóta viðurkenninguna.
Til að hljóta viðurkenninguna þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Hafa skilað ársreikningi til RSK fyrir rekstrarárin 2018–2020
- Hafa skilað nýjasta ársreikningi á réttum tíma
- Vera í lánshæfisflokki 1, 2 eða 3
- Rekstrarhagnaður (EBIT) er jákvæður rekstrarárin 2018–2020
- Eiginfjárhlutfall er a.m.k. 20% rekstrarárin 2018–2020
- Framkvæmdastjóri er skráður í fyrirtækjaskrá RSK
- Fyrirtækið er virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
- Rekstrartekjur eru a.m.k. 50 m.kr. rekstrarárin 2018–2020
- Eignir eru a.m.k. 100 m.kr. rekstrarárin 2018–2020
- Ársniðurstaða er jákvæð rekstrarárin 2018–2020