Chat with us, powered by LiveChat
Fara á efnissvæði

Eldgos í sundhnúkagígum 21. nóvember

Eldgos hófst í Sundhnúkagígaröðinni seint í gærkvöld, 20. nóvember. Neyðarstjórn HS Veitna hefur verið að störfum við að fylgjast með þróun hraunflæðis og möguleg áhrif á innviði fyrirtækisins.

Eldgos 20. Nóv

Staðan að morgni 21. nóvember er þannig að hraun hefur farið yfir Njarðvíkuræð sem færir heitt vatn frá Svartsengi til Fitja þar sem HS Veitur fá heitt vatn afhent til dreifingar frá HS Orku.

Njarðvíkuræð fór síðast undir hraun í febrúar síðastliðin með þeim afleiðingum að Suðurnesin voru án heits vatns í nokkra daga.Talið er að lögnin sé vel varin þar sem hrauntungan fór nú yfir og til samanburðar er Grindavíkuræðin undir um kílómeters kafla af hrauni frá fyrra eldgosi og heldur sú lögn enn.

Heitt vatn er enn að berast um Njarðvíkuræðina og vonir standa til að svo verði áfram, það er þó ekki á vísan að róa í þeim efnum. Ef íbúar vilja undirbúa sig fyrir mögulegt þjónusturof minnum við á ábendingar okkar sem eru aðgengilegar hér: 

Svartsengislína Landsnets sem tengist orkuverinu í Svartsengi er rofin vegna hraunflæðis. Það olli rafmagnstruflun á öllum Suðurnesjum en ætti ekki að hafa frekari áhrif á afhendingu rafmagns í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum en rafmagnslaust er nú í Grindavík.

Neyðarstjórn HS Veitna heldur áfram að fylgjast náið með stöðu mála, viðbragðsáætlanir eru í stöðugri endurskoðun og munum við halda okkar viðskiptavinum áfram upplýstum um stöðu mála.

 

  • Uppfært kl. 10.50: Rafmagn er komið á Grindavík aftur