Eldgos er hafið á ný á Reykjanesi !
Neyðarstjórn HS Veitna er að störfum og fylgist náið með gangi mála. Við munum senda út frekari upplýsingar um stöðuna um leið og þær liggja fyrir.
Frá síðasta gosi er búið að fergja hluta Njarðvíkuræðarinnar og er því heitavatnslögnin, sem flytur heitt vatn til Suðurnesja, nú betur tryggð en fyrir síðasta gos ef svo fer að hraunflæði fer aftur yfir hana.