Heildarhagnaður af starfsemi ársins 2021 var 949 m.kr. á móti hagnaði árið 2020 upp á 565 m.kr.
EBITDA var 3.238 m.kr. (40,2%) árið 2021 á móti 2.544 m.kr. (35,3%) árið 2020.
Fjárhagsstaða er sterk og horfur góðar. Eiginfjárhlutfall þann 31. desember 2021 er 48,0% en var 47,3% í ársbyrjun.
Veltufjárhlutfall var 1,36 þann 31. desember 2021 samanborið við 1,47 í árslok 2020.
Hluthafar félagsins eru þrír og skiptist hlutafjáreign þeirra þannig 31.12.2021
Reykjanesbær | 50,10% |
HSV Eignarhaldsfélag | 49,80% |
Suðurnesjabær | 0,10% |