Ársreikningur HS Veitna hf. fyrir árið 2017 var samþykktur á fundi stjórnar í dag, 16. febrúar 2018.
Hagnaður ársins 2017 var 848 m.kr. á móti hagnaði árið 2016 upp á 736 m.kr. en heildarhagnaður 2017 var 4.378 m.kr að teknu tilliti til endurmats fastafjármuna upp á 4,1 milljarð (3.530 m.kr. að teknu tilliti til tekjuskatts).
EBITDA var 2.160 m.kr. (34,6%) árið 2017 á móti 1.899 m.kr. (32,9%) árið 2016.
Fjárhagsstaða er sterk og horfur góðar. Eiginfjárhlutfall þann 31. desember 2017 er 50,4% en var 42,3% í ársbyrjun.
Veltufjárhlutfall var 0,66 þann 31. desember 2017 samanborið við 2,52 í árslok 2016.
Hluthafar félagsins eru fjórir, í lok árs áttu þrír hluthafa yfir 10% hlut í félaginu:
- Reykjanesbær 50.10%
- HSV Eignarhaldsfélag slhf 34.38%
- Hafnarfjarðarbær 15.42%