Deloitte ehf. gegnir eftirlitshlutverki með skuldabréfaflokkum HS Veitna hf. sem gefnir voru út í janúar 2013 og janúar 2018.
Staðfesting þessi miðast við stöðu HS Veitna þann 31.12.2018 en ársreikningur ársins 2018 var undirritaður þann 25. febrúar 2019
Eftirfarandi atriði voru yfirfarin
- Útreikningar útgefanda á skilyrðum skuldabréfaflokksins
- Hvort upplýsingaskylda væri uppfyllt
- Hvort breytingar væru á grundvallar rekstrarþáttum
- Hvort breytingar væru á einkaleyfi
- Hvort breytingar væru á eignarhaldi umfram reglur
- Hvort breyttingar væru á veðsetningu eigna og áhrif
- Hvort takmörkun á vaxtaberandi skuldum væri ekki örugglega fylgt
- Hvort breytingar væru á starfsemi félagsins
- Hvort viðmið vegna arðgreiðslna væri fylgt
- Hvort vanskil væru til staða
Niðurstaða er að öllum skilyrðum er fylgt og engar athugasemdir gerðar.