Lega lagna
Fáðu lagnateikningar frá okkur.
Teikningar geta innihaldið skekkjur og því er öruggast að fá starfsfólk okkar til að meta hvort leita þarf að veitulögnum áður en grafið er. Við eigum góðan búnað til að hlusta út strengi og pípur eða mæla út frá föstum viðmiðum. Ekki hika við að hafa samband, þar sem þessi þjónusta er veitt án endurgjalds og fæst með því að hringja í síma 4225201 eða með umsókn í tölvupósti til legalagna@hsveitur.is
Vélknúnar gröfur valda flestum tjónum á lögnum okkar í jörðu. Þess vegna ber umráðamönnum slíkra tækja að tryggja sig gegn tjóni sem þeir kunna að valda. Það kostar frá nokkrum tugum þúsunda upp í milljónir króna að gera við veitulagnir sem skemmast. Þá er ekki meðtalinn kostnaður framkvæmdaaðila við að lagfæra þær skemmdir sem tjónið kann að valda, eins og vatnsleka.
Allt tjónið er á ábyrgð framkvæmdaaðila og alls óvíst með gildissvið trygginga ef ekki hefur verið leitað eftir upplýsingum og sótt um leyfi áður en framkvæmdir hefjast.
Upplýsingagjöf HS Veitna um legu lagna í jörðu er til að forða framkvæmdaaðilum frá tjóni og tryggja öryggi þeirra og annarra.
Athugið að leita eftir teikningum frá öðrum þjónustuveitum sem kunna að vera á staðnum, til dæmis ljósleiðari.