Vinnustaðurinn og laus störf
HS Veitur eru framsækið þekkingar- og þjónustufyrirtæki í veitustarfsemi sem telst til mikilvægra innviða
Hjá HS Veitum starfa um 100 starfsmenn á fjórum starfsstöðvum sem sinna margvíslegum störfum. Fyrirtækið þjónar mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins og eru íbúar á veitusvæði HS Veitna tæplega 90 þúsund.
Í fyrirtækinu ríkir jákvæður starfsandi sem einkennist af sterkri liðsheild og virðingu í samskiptum.
Gildin okkar eru:
Traust
Virðing
Framfarir
Viltu vera með?
HS Veitur eru leiðandi á landsvísu þegar kemur að þróun og framförum. Hjá okkur er rík áhersla á öryggi og að starfsfólk komi ávallt heilt heim. Liðsfélagar fá tækifæri til að eflast, þróast og nýta hæfni sína og styrkleika í starfi.
Saman vinnum við að því að færa viðskiptavinum rafmagn, heitt og kalt vatn heim. Vertu hluti af öflugu teymi og taktu þátt í að þróa og sinna samfélagslega mikilvægum innviðum !
Störf í boði
-
HS Veitur leita að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi til að sinna kerfisstjórn og þjónustu við notendur. Viðkomandi tekur jafnframt þátt í ýmsum verkefnum á sviði upplýsingatækni, umbóta og verkferla.
Viðkomandi þarf að hafa framúrskarandi þjónustu- og samskiptahæfileika og tæknilega kunnáttu til að leysa fjölbreytt og krefjandi verkefni.
Frekari upplýsingar og umsóknarform má nálgast hér.
-
Við hjá HS Veitum erum reglulega að leita að glaðlyndum einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna með okkur í að færa viðskiptavinum okkar þægindin heim !
Af hverju HS Veitur?
- Öryggi
Hjá okkur er lögð rík áhersla á að starfsfólk finni fyrir öryggi og trausti. Leggjum við áherslu á að skapa góða öryggismenningu á vinnustaðnum. - Vellíðan
Við bjóðum upp á stuðningsríkt vinnuumhverfi sem inniheldur áherslu á að vera fjölskylduvænn vinnustaður, líkamsræktarstyrki, heilsuverndarþjónustu, góða næringu og ýmsar athafnir sem ætlaðar eru til að halda starfsfólki okkar bæði líkamlega og andlega heilbrigðu. - Liðsandi
Með virku starfsmannafélagi er iðulega eitthvað spennandi framundan, sem eykur bæði gleði og ánægju í vinnunni.
Frekari upplýsingar
-
- Allar umsóknir fara í gegnum ráðningarvef Alfreðs nema annað sé tekið fram.
- Farið er með allar umsóknir og fyrirspurnir um störf sem trúnaðarmál.
- Umsækjendur fá staðfestingu á móttöku umsóknar í tölvupósti.
- Öllum umsóknum um auglýst störf er svarað þegar búið er að ráða í starfið.
- Aðeins mannauðsstjóri, eftir atvikum utanaðkomandi ráðgjafi í ráðningum og stjórnandi þess sviðs sem auglýst starf tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast.
-
Mannauðsstefna
- Markmið HS Veitna er að tryggja að vinnustaðurinn einkennist af fagþekkingu, verkkunnáttu, þjónustulund, starfsgleði, heiðarleika og gagnkvæmri virðingu. Möguleikar til að ná fram settum markmiðum byggjast fyrst og fremst á því að fyrirtækið hafi yfir að ráða hæfu, áhugasömu og vel menntuðu starfsfólki sem getur axlað ábyrgð og sýnt frumkvæði í starfi, brugðist við síbreytilegum þörfum og geti þannig tekið virkan þátt í framþróun fyrirtækisins. Einnig að fyrirtækið leggi metnað sinn í að hlúa vel að sínu starfsfólki til að viðhalda starfsánægju og góðum starfsanda.
Jafnréttisstefna
- Jafnréttisstefna HS Veitna er unnin í samræmi við lög nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og lög nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði. Með jafnréttisstefnunni einsetja HS Veitur sér að vinna markvisst að því að jafna stöðu kynjanna á vinnustaðnum. Kynbundið ofbeldi, kynbundin og/eða kynferðisleg áreitni er alls ekki liðin á vinnustaðnum og skuldbinda HS Veitur sig til þess að bregðast við í samræmi við aðgerðir í jafnréttisáætlun komi slík atvik upp. Einnig miðar jafnréttisstefnan að því að HS Veitur séu góður og eftirsóknarverður vinnustaður fyrir alla óháð kyni, uppruna eða öðrum ómálefnalegum forsendum.