Útsláttur á Selfossi þann 22. janúar

Um kl. 11 þann 22. janúar var grafið í háspennustreng á Selfossi sem olli rafmagnsleysi á stórum hluta bæjarins í um 10 mínútur eða á meðan strengurinn var tekinn út. Útslátturinn olli því að rofi fór út fyrir spenni í dreifistöð í austurhluta bæjarins og var hluti austurhlutans áfram rafmagnslaus, samtals í um 45 mínútur eða til kl. 11:45.