Breyta í þriggja fasa rafmagn

Í flestum tilvikum er hægt að breyta heimtaug úr einfasa yfir í þriggja fasa. Ekkert gjald er reikningsfært ef heimtaugin býður upp á þriggja fasa rafmagn.

Ef í ljós kemur að skipta þurfi um heimtaugina, verður að sækja um nýja heimlögn.

Ef óskað er eftir að breyta úr einum fasa í þrjá þá gilda eftirfarandi tvö ferli:

Ferli I

  • Viðskiptavinur semur við rafverktaka og sækir um breytingu inná Mínum síðum HS Veitna
  • Rafverktaki sendir inn Þjónustubeiðni til HS Veitna í gegnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
  • Viðskiptavinur/Tengiliður upplýstur um afhendingartíma og kostnað ef hægt er að framkvæma án þess að skipta um heimlögn
  • HS Veitur taka rafmagn af í samráði við rafverktaka rafvirkja
  • Rafverktaki tekur niður einfasa mæli og breytir rafmagnstöflu
  • HS Veitur breyta í þriggja fasa rafmagn og setja upp nýjan mæli

Ferli II

Afhendingartími er áætlaður 5 virkir dagar með fyrirvara um að strengur sé hæfur fyrir þrjá fasa og hvorki þurfi að gera breytingar né stækka götuskáp.