Rafmagnsleysi útfrá aðveitustöð VOG-A Vogum

Vegna viðhaldsvinnu í aðveitustöð okkar í Vogum, aðfaranótt 14.10.21 er óhjákvæmilegt að hluti af fasteignum sem tengjast viðkomandi stöð verði án rafmagns á meðan vinnu stendur. Eigendur fasteigna á þessu svæði sem hafa skráð símanúmer (NÁNAR HÉR) fá senda tilkynningu um straumleysið með SMS (smáskilaboðum).

Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 00:00 á miðnætti og rafmagn verði komið á aftur eigi síðar en kl. 04:00 þann 14.10.21

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda viðskiptavinum okkar.