Chat with us, powered by LiveChat
Fara á efnissvæði

Hitaveitulokun í Garði mánudagskvöldið 18. nóvember

Lokað verður fyrir hitaveitu í Garði, Suðurnesjabæ, mánudagskvöldið 18. nóvember frá kl. 21:30 og er áætlað að heitt vatn verði komið á aftur fyrir kl. 8 morguninn eftir.

Garður

Er lokunin vegna viðhaldsvinnu á gatnamótum Garðbrautar, Heiðarbrautar og Gerðavegs og undirbúnings tengingar hitaveitunnar við lághitaborholu í Rockville. 

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem af þessu verður!