UPPFÆRT: 29.04.21 Taka þarf rafmagn af að nýju í nótt þar sem uppkom óvænt atvík í tengslum við þá vinnu sem átti sér stað síðustu nótt. Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 00:00 á miðnætti og rafmagn verði komið á aftur eigi síðar en kl. 02:00 að nóttu þann 30.04.21.
Vegna viðhaldsvinnu í aðveitustöð Vogum, aðfaranótt 29.04.21 er óhjákvæmilegt að fasteignir sem tengjast viðkomandi stöð verði án rafmagns og ferskvatns á meðan vinnu stendur. Eigendur fasteigna á þessu svæði sem hafa skráð símanúmer (NÁNAR HÉR) fá senda tilkynningu um straumleysið með SMS (smáskilaboðum).
Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 00:00 á miðnætti og rafmagn verði komið á aftur eigi síðar en kl. 07:00 þann 29.04.21
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda viðskiptavinum okkar.