Staða veitukerfa vegna eldgoss í Sundhnúkagígum 30. maí

Eldgos hófst í Sundhnúkagígum um hádegisbil í gær, miðvikudaginn 29. maí. Nokkrar sprungur opnuðust og hefur hraun flætt um stórt svæði.

 

Enn er rafmagnslaust í Grindavík eftir að loftlína frá Svartsengi til Grindavíkur skemmdist verulega er kviknaði í henni vegna hraunflæðis. Unnið er að því í samstarfi við Almannavarnir að fara í bráðaaðgerðir til að koma rafmagni á bæinn aftur þar sem ljóst er að nokkurn tíma mun taka að lagfæra skemmdirnar. Enn er virkni í eldgosinu og áhersla lögð á að fyllsta öryggis sé gætt. Fyrsta skref er undirbúningur við að koma varaafli á bæinn og er sú vinna hafin. Þá urðu fleiri rafmagnsstrengir við Grindavík fyrir skemmdum vegna hraunflæðis og er verið að skoða leiðir til að koma þeim aftur í gagnið.


Hraun flæddi einnig yfir stofnlögn hitaveitu við Grindavík í gær. Lögnin heldur enn sem komið er undir heitu hrauninu og er góður þrýstingur á hitaveitunni í bænum.


Neyðarstjórn HS Veitna er að störfum og fylgist náið með þróun hraunflæðis á svæðinu og uppfærir viðbragðsáætlanir í takt við það. Eins og staðan er um hádegisbil í dag, fimmtudag, er ekki talin hætta á að fleiri innviðir fyrirtækisins á svæðinu verði undir hraunflæði á næstunni.