Keflavík: Rafmagnslaust miðsvæðis í bænum fimmtudaginn 4. júlí frá kl. 20

Rafmagnslaust verður á afmörkuðu svæði við Aðalgötu, Hringbraut, Tjarnargötu, Miðtún, Vallartún, Hrauntún og Sóltún fimmtudagskvöldið 4.júlí. Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl 20:00 og að rafmagn verði komið á að nýju kl 02:00 eftir miðnætti.

 

Þetta rafmagnsleysi er tilkomið vegna viðgerðar.

 

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem af þessu verður.

 

Rafmagnslaust verður á gula skyggða svæðinu.